Heimsfrægir listamenn sýna í Hallormsstað (Þriðjudaginn 6. janúar, 2004)
View all of Heimsfrægir listamenn sýna í Hallormsstað
[Subsection]
Í Hallormsstaðarskógi á Fljótsdalshéraði ræður listelskt fólk ríkjum, því að nú stendur til að halda í skóginum fjórðu myndlistarsýninguna að vori.
Sýningin mun bera heitið Fantasy Island 2004 og í henni taka þátt átta íslenskir og erlendir samtímalistamenn á rýmisverkum. Þeir eru Joep van Lieshout, Paul McCarthy, Jason Rhoades, Elin Wikström, Hannes Lárusson, sem jafnframt er sýningarstjóri Fantasy Island, Katrín Sigurðardóttir, Björn Roth og Þorvaldur Þorsteinsson, öll vel metnir samtímalistamenn og sum vel þekkt á alþjóðavettvangi.
Inntak sýningarinnar er rýmishugsun í fjölbreyttum myndum, oftast í samfélagslegu návígi. Þetta einkennir vinnubrögð listamannanna ásamt vissu óstýrilæti, óvæntu hugmyndaflugi og innri spennu, eins og segir í kynningu.
Content, including images, © Morgunblaðið, 2004. Used with permission.
TEI markup © Board of Regents of the University of Wisconsin System, 2004. All rights reserved.
Those interested in using these texts for any purpose not covered under Fair Use must seek the permission of Morgunblaðið and the University of Wisconsin-Madison Libraries.
