Farsímar eru orðnir um 210 þúsund talsins (Fimmtudaginn 23. nóvember, 2000)
View all of Íslendingar heimsmeistarar í farsímanotkun: Farsímar eru orðnir um 210 þúsund talsins
Farsímakort í margs konar öðrum tækjum
Notkun GSM-síma hefur aukist mjög hratt á seinustu 2-3 árum. Í ársbyrjun 1997 voru um 8,6% þjóðarinnar komin með GSM-síma. Tveimur árum síðar var þriðji hver Íslendingur farsímanotandi og voru Íslendingar þá komnir í fimmta sæti yfir fjölda notenda farsíma í Evrópu miðað við hverja þúsund íbúa. Í byrjun þessa árs var um 61% þjóðarinnar komið með farsíma, en í dag er hlutfallið nálægt 75%.
Þórólfur Árnason, forstjóri Tals, bendir á að ekki sé öll sagan sögð ef eingöngu sé litið á fjölda farsíma því nú þegar sé kominn í notkun töluverður fjöldi ýmiss konar tækja og búnaðar sem nota farsímakort, s.s. vöktunartækja, farposa, ferðatölva o.fl. "Það eru raunverulega engin endamörk á því hversu mörg tæki koma til sem nýta þessa tækni og ný tækni, eins og t.d. GPRS-kerfið sem Tal hefur þegar tekið í notkun, mun örugglega ýta undir aukna notkun GSM fyrir fartölvur, myndsendingar og svo framvegis," segir hann. Þórólfur telur að smám saman muni menn hætta að tala um farsímanotkun sem hlutfall af fjölda íbúa því farsímatæknina verði að finna í fjölda margs konar tækja s.s. inni á heimilum, í farartækjum og víðar.
Dagblaðið Financial Times fjallaði um hina útbreiddu notkun farsíma á Íslandi og samkeppni á fjarskiptamarkaðinum í grein í seinustu viku. Þar kemur fram að Íslendingar séu orðnir ein fremsta tækniþjóð í heiminum og því sé spáð að farsímaeign verði komin yfir 100% af íbúafjölda um mitt ár 2002.
Content, including images, © Morgunblaðið, 2004. Used with permission.
TEI markup © Board of Regents of the University of Wisconsin System, 2004. All rights reserved.
Those interested in using these texts for any purpose not covered under Fair Use must seek the permission of Morgunblaðið and the University of Wisconsin-Madison Libraries.
