Ekkert toppar að ferðast um Ísland (Sunnudaginn 27. apríl, 2003)
View all of Uppáhalds tjaldstæði Lindu Kristínar Guðmundsdóttur er á Snæfellsnesi: Ekkert toppar að ferðast um Ísland
[Subsection]
"Á sumrin förum við yfirleitt um hverja helgi út úr bænum ef veðrið er skaplegt," segir Linda Kristín Guðmundsdóttir en fjölskyldan hefur í mörg ár átt annaðhvort fellihýsi eða tjaldvagn sem hún hefur farið með í ferðalög um landið.
"Einn af okkar uppáhaldsstöðum er Langaholt á Snæfellsnesi en sá staður verður oft fyrir valinu ef veðrið er gott því það er mátulega langt að keyra þangað með börnin í aftursætinu og staðurinn ekki síst frábær fyrir þau. Víðáttan er mikil og sandurinn og fjaran fyrir framan tjaldsvæðið. Börnin geta unað sér þarna heilu dagana, skoðað það sem finnst í fjörunni og hlaupið og leikið sér. " Linda segir að fólkið sem reki Langaholt sé einstaklega elskulegt og vilji allt fyrir gesti sína gera. Þau reka gistiheimili og þar er fín aðstaða til að baða sig en á tjaldsvæðinu sjálfu er síðan önnur hreinlætisaðstaða. Lítil verslun er í Langaholti þar sem hægt er að nálgast nauðsynjavöru.
Síðast en ekki síst segir Linda að þar sé golfvöllur sem eiginmanninum finnist ómissandi og hún segist sjálf vera farin að fikra sig áfram með sveifluna.
"Við förum svo í stuttar ferðir frá Langaholti, skreppum á Hellnar, Stapann, förum í Dritvík, göngum inn Rauðfellsgjá og í fyrra fórum við t.d. á færeyska daga í Ólafsvík. Við eigum svo eftir að prófa að fara með skíðagræjurnar á jökulinn og sigla um Breiðafjörðinn.
Linda segir algengt að nokkur vinahjón dvelji saman á tjaldstæðum og oft segir hún að þannig sé það hjá þeim. "Við erum yfirleitt með vinahjónum og þá getur oft verið fjör þegar nokkrar fjölskyldur fara saman."
Content, including images, © Morgunblaðið, 2004. Used with permission.
TEI markup © Board of Regents of the University of Wisconsin System, 2004. All rights reserved.
Those interested in using these texts for any purpose not covered under Fair Use must seek the permission of Morgunblaðið and the University of Wisconsin-Madison Libraries.
