University of Wisconsin Digital Collections
Link to University of Wisconsin Digital Collections
Link to University of Wisconsin Digital Collections
Icelandic Online Dictionary and Readings

Magnús Grímsson, 1825-1860; Jón Árnason, 1819-1888 / Íslenzk æfintyri (1852)

View all of 9. Sæmundur fróði.

Previous Previous subsection

Next subsection Next



 

h) Sæmundur kveðst á við kölska.

Einu sinni hafði Sæmundur veðjað við kölska um það, að hann skyldi aldrei geta komið með þann fyrri hluta úr vísu, hvorki á latínu né íslensku, sem hann gæti ekki sett botninn í. Sæmundur setti sjálfan sig í veð fyrir þessu, og með því kölska lék ærinn hugur á að ná í hann, þá sparaði hann ekki tilraunir um þetta. Einu sinni, þegar prestur var á setunum, kom kölski þar, og segir:

"Nunc tibi deest gramen".[1*]

Þá segir prestur:

"Digito tu terge foramen"![2*]

Í öðru sinni settist kölski á kirkjubustina, og segir:

"Hæc domus est alta".[3*]

Þá segir prestur:

"Si vis descendere, salta"![4*]

  [p. 44]  

Einu sinni var Sæmundur að drekka úr horni, þá kemur kölski þar, og segir:

"Nunc bibis ex cornu".[5*]

Þá segir prestur:

"Vidisti, qvo modo fór nú"?[6*]

Kölski segir, að "fór nú" sé ekki latína, og þykist hafa unnið veð. En Sæmundur kvað það ósatt. Þrættust þeir um það lengi, en svo lauk, að Sæmundur sannaði kölska það, að "fór nú" væri latína. "Reynum við þá einu sinni á íslensku", segir kölski. "Það skal vera", segir Sæmundur, "og byrja þú". Þá segir kölski:

"Allt er runninn út í botn
áttungur með hreina vatn".

Þá segir prestur:

"Allt er vald hjá einum drottn',
á hans náð ei verður sjatn".

Hafði þá kölski enn beðið ósigur fyrir Sæmundi, og er þess ekki getið, að þeir kvæðust á síðan.


Notes

[1*] Ekruhadd (þ. e.: gras) þig illilega vantar.

[2*] Það er nóg ég náði' í þig, núna til að skeina mig.

[3*] Þetta hús er hátt, það má ég játa.

[4*] Ofan hrapa' ef enn vilt þú, er þér best að stökkva nú.

[5*] Af horni í þig hellir þú.

[6*] Hvernig sýndist þér fór nú?

Previous Previous subsection

Next subsection Next




Go up to Top of Page