University of Wisconsin Digital Collections
Link to University of Wisconsin Digital Collections
Link to University of Wisconsin Digital Collections
Icelandic Online Dictionary and Readings

Magnús Grímsson, 1825-1860; Jón Árnason, 1819-1888 / Íslenzk æfintyri (1852)

View all of 9. Sæmundur fróði.

Previous Previous subsection

Next subsection Next



 

g) Púkablístran.

Sæmundur átti pípu eina, sem hafði þá náttúru, að þegar í hana var blásið, þá komu einn   [p. 42]   eða fleiri púkar til hans, og spurðu, hvað þeir ættu að gjöra. Einu sinni hafði Sæmundur skilið pípuna eptir í rúminu sínu, undir höfðalaginu, þar sem hann var ætíð vanur að hafa hana á næturnar. Um kveldið sagði hann þjónustustúlkunni að búa um sig, eins og vant væri, en tók henni vara fyrir því, að ef hún fyndi nokkuð óvanalegt í rúminu, þá mætt hún ekki snerta það, heldur láta það vera kyrrt á sínum stað. Stúlkan fór að búa um, og varð nú heldur en ekki forvitin, þegar hún sá pípuna. Hún tók hana óðar, og skoðaði hana í krók og í kring, og seinast bljes hún í hana. Kom þá undir eins til hennar púki einn, og spurði: "Hvað á jeg að gjöra?" Stúlkunni varð bilt við, en ljet þó ekki á því bera. Svo stóð á, að um daginn hafði verið slátrað 10 sauðum hjá Sæmundi, og lágu allar gærurnar úti. Stúlkan segir púkanum, að hann eigi að telja öll hárin á gærunum, og ef hann verði fljótari að því, en hún að búa um rúmið, þá megi hann eiga sig. Púkinn fór og kepptist við að telja, og stúlkan hraðaði sjer að búa um. Þegar hún var búin, átti púkinn eptir að telja á einum skæklinum, og var hann þá af kaupinu. Sæmundur   [p. 43]   spurði síðan stúlkuna, hvort hún hefði fundið nokkuð í rúminu. Hún sagði frá öllu, eins og var, og líkaði Sæmundi vel ráðkænska hennar.

Previous Previous subsection

Next subsection Next




Go up to Top of Page