Carry On Icelandic: Culture [selections] (2004)
View all of Helstu söfn - Principal Museums
Helstu söfn
Á Þjóðminjasafni Íslands, sem stofnað var 1863, eru varðveittar helstu þjóðminjar þjóðarinnar. Þangað er einnig safnað hvers kyns heimildum um íslenska menningarsögu og upplýsingum um þjóðlíf og þjóðhætti. Auk þess varðveita byggðasöfn úti á landi menjar sem tengjast sérstökum byggðalögum. Þjóðminjasafn Íslands hýsti Listasafn Íslands þar til það flutti í eigið húsnæði 1988.
Listasafn Íslands er þjóðlistasafn og leggur megináherslu á 19. og 20. aldar list, íslenska og erlenda. Það á merkasta safn íslenskra verka hér á landi og eftir alla helstu myndlistarmenn þjóðarinnar.
Í Þjóðarbókhlöðunni er til húsa bókakostur gamla Landsbókasafns og Háskólabókasafns (At the National Book Stack is housed books from the former National Library and the University Library).
Þjóðarbókhlaðan var stofnuð 1994. Hún er stærsta bókasafn landsins og eru þar sameinuð Landsbókasafn og bókasafn Háskóla Íslands. Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn er rannsóknarbókasafn. Safnið er í senn þjóðbókasafn og bókasafn Háskóla Íslands. Hlutverk þess er m.a. að varðveita allt útgefið efni á íslensku og að vera almennt útlánasafn sem uppfyllir þarfir Háskóla Íslands hvað snertir íslensk og erlend fræðirit. Þar er sérstök þjóðdeild og handritadeild.
Í Listasafni Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum eru varðveittir listmunir Reykjavíkurborgar auk glæsilegrar sýningaraðstöðu sem þar er. Kjarvalsstaðir eru nefndir eftir íslenska listmálaranum Jóhannesi S. Kjarval en hann er einn virtasti listamaður þjóðarinnar. Hann ánafnaði Reykjavíkurborg stóran hluta listaverka sinna og persónulegra eigna árið 1968. Sérstakar sýningar á verkum Kjarvals eru haldnar á Kjarvalsstöðum ár hvert.
Sérstakt Þjóðmenningarhús var opnað árið 2000 í gömlu húsi sem áður hýsti Landsbókasafn Íslands og er talið með gersemum í íslenskri byggingarsögu. Í Þjóðmenningarhúsinu eru haldnar sýningar er lúta að menningarsögu Íslands.
Nýlistasafnið á mjög stórt safn listaverka og heimilda og hefur tekist að varðveita einstæðan hluta af íslenskri listasögu. Í safninu eru verk eftir flesta félaga SÚM hópsins auk þess sem safnið á verk eftir marga helstu yngri listamenn þjóðarinnar og sífellt bætast við verk. Einnig á safnið verk eftir um 50 erlenda listamenn, þ.á.m. eitt stærsta safn verka sem til er eftir þýsk-svissneska listamanninn Dieter Roth. Öll verk í eigu safnsins eru valin af listamönnunum sjálfum, ekki sérfræðingum listastofnana.
Auk þessa er fjöldi minni safna og sýningarsala víða um land.
Content, including images, © Stofnun Sigurður Nordals, 2004. Used with permission.
TEI markup © Board of Regents of the University of Wisconsin System, 2004. All rights reserved.
Those interested in using these texts for any purpose not covered under Fair Use must seek the permission of Stofnun Sigurður Nordals and the University of Wisconsin-Madison Libraries.
