Carry On Icelandic: Culture [selections] (2004)
View all of Líf eftir vinnu - Life After Work
Líf eftir vinnu
Íslendingar vinna langan vinnudag. Eftir slíkan dag er gott að slaka á í faðmi fjölskyldunnar, hitta vini og kunningja eða finna sér eitthvað áhugavert til afþreyingar.
Það verður stöðugt vinsælla að stunda líkamsrækt í einhverri af hinum fjölmörgu líkamsræktarstöðvum landsins og mjög vinsælt er af öllum aldurshópum að fara í sund. Þá eru gönguferðir úti í náttúrunni mikið stundaðar, enda yfirleitt stutt út í guðs græna náttúruna og því fyrirhafnarlítil heilsurækt. Á vetrum er alltaf gaman að renna sér á skíðum eða skautum. Að undanförnu hefur orðið stöðugt vinsælla að fara í vetrarferðir upp á hálendið og snjósleðaakstur á miklum vinsældum að fagna.
Menningarlífið er afar fjölskrúðugt. Alls kyns námskeið eru í boði til að lífga upp á tilveruna. Leikhús og kvikmyndahús eru mikið sótt. Ótrúlegur fjöldi kóra starfar í landinu og varla er til það krummaskuð sem ekki á sinn áhugaleikhóp.
Um helgar þyrpist aðallega yngra fólkið á einhvern af hinum fjölmörgu skemmtistöðum til að gera sér glaðan dag. Flestir skemmtistaðirnir í Reykjavík eru í miðbænum og er þar oft margt um manninn um helgar.
Content, including images, © Stofnun Sigurður Nordals, 2004. Used with permission.
TEI markup © Board of Regents of the University of Wisconsin System, 2004. All rights reserved.
Those interested in using these texts for any purpose not covered under Fair Use must seek the permission of Stofnun Sigurður Nordals and the University of Wisconsin-Madison Libraries.

