Carry On Icelandic: Culture [selections] (2004)
View all of Þjóðtrú - Folk Beliefs
Þjóðtrú
Lengi hefur verið við lýði trú á drauga og eru margar þjóðsögur til um þá. Sama máli gegnir um huldufólk og tröll sem talið er að búi í klettum, hólum og fjöllum. Margir telja að varasamt geti verið að styggja þessar verur.
Víða eru sérstakir álfasteinar sem varhugavert þykir að hrófla við. Þess eru mýmörg dæmi að skipulagi, t.d. vega, hafi verið breytt af tillitssemi við álfaþjóðina enda gætu álfarnir hefnt sín ef þeim væri misboðið, eins og fjölmargar sagnir greina frá. Sumir telja trú á huldufólk og aðrar huldar verur bera sterkan keim af keltneskum menningaráhrifum þeirra fjölmörgu Breta er fylgdu norrænum landnemum til Íslands. Þrátt fyrir baráttu kirkjunnar gegn slíkri þjóðtrú hefur hún samt lifað góðu lífi meðal þorra almennings og gerir það jafnvel enn meðal nútímafólks.
Bæjarbruni á Staðarfelli
Um veturinn 1808 brann bærinn á Staðarfelli allur að köldum kolum. En fyrir neðan bæinn á Staðarfelli framan í sjóvarbökkunum var stór steinn sem sagt var að álfkona byggi í, en af því að hrynur úr bökkunum þá stóð steinninn hálfur fram af, en sat þó fastur ef ekki var við átt, og hafði staðið svo lengi, en öllum var boðin varúð að glettast við steininn. En skömmu áður en brann gjörðu vinnumennirnir það af glensi að þeir hrundu steininum fram í sjó, en nóttina eftir dreymdi Benedikt gamla Bogason álfkonuna, og sagði að honum mundi ekki verða betra af því að menn hans hafi gletst við húsið sitt, og skömmu síðar brann bærinn og rættist svo spáin. (Úr þjóðsögum Jóns Árnasonar).
Content, including images, © Stofnun Sigurður Nordals, 2004. Used with permission.
TEI markup © Board of Regents of the University of Wisconsin System, 2004. All rights reserved.
Those interested in using these texts for any purpose not covered under Fair Use must seek the permission of Stofnun Sigurður Nordals and the University of Wisconsin-Madison Libraries.

