Carry On Icelandic: Culture [selections] (2004)
View all of Hátt menntunarstig - High Educational Levels
Hátt menntunarstig
Á Íslandi er menntunarstig tiltölulega hátt. Um það bil 50% hvers árgangs ljúka stúdentsprófi, 16% Íslendinga á aldrinum 25-64 ára hafa lokið háskólaprófi. Auk þess hafa önnur 16% lokið sérskólamenntun á háskólastigi.
Kynning á framhaldsnámi fyrir almenning við Háskóla Íslands (Further studies being introduced to the public at the University of Iceland).
Á síðari árum hafa þekking og rannsóknir í auknum mæli orðið grundvöllur verðmætasköpunar. Í stað þess að treysta nær eingöngu á auðlindir, einkum gjöful fiskimið og næga orku sem framleiða má með vatnsafli og jarðhita, beina Íslendingar nú sjónum sínum að nýjum möguleikum á sviði líftækniiðnaðar, hugbúnaðar, tölvuvinnslu og lyfjaframleiðslu.
Þekktasta og umdeildasta dæmið um slíkan þekkingariðnað er fyrirtækið Íslensk erfðagreining. Það starfar að erfðarannsóknum og meingenagreiningu í samvinnu við erlenda fjárfesta. Með rannsóknum á sviði erfðagreiningar er ætlunin að þróa ný lyf og aðferðir við að lækna og fyrirbyggja arfgenga sjúkdóma. Íslensk erfðagreining hefur fengið einkaleyfi til að starfrækja stóran miðlægan gagnagrunn sem í á að safna heilsufarsupplýsingum allra Íslendinga ásamt upplýsingum um látna Íslendinga sem byggja má á eldri gögnum og lífsýnasöfnum.
Hátt menntunarstig hefur leitt til framþróunar og nýsköpunar á fleiri sviðum en í erfðafræði. Á undanförnum árum hafa íslensk fyrirtæki haslað sér völl í ýmiss konar hátækniiðnaði. Dæmi um slík fyrirtæki eru hugbúnaðarframleiðendur, og fyrirtæki sem framleiða hátæknibúnað til nota í sjávarútvegi.
Content, including images, © Stofnun Sigurður Nordals, 2004. Used with permission.
TEI markup © Board of Regents of the University of Wisconsin System, 2004. All rights reserved.
Those interested in using these texts for any purpose not covered under Fair Use must seek the permission of Stofnun Sigurður Nordals and the University of Wisconsin-Madison Libraries.
