Carry On Icelandic: Culture [selections] (2004)
View all of Landafundir - Nordic Discoveries
Landafundir
Á seinni hluta 10. aldar héldu Íslendingar vestur um haf í landaleit. Eiríkur rauði fann þá land sem hann nefndi Grænland "og kvað menn það myndu fýsa þangað farar að landið ætti nafn gott" (Ari fróði, Íslendingabók). Samkvæmt Landnámu kannaði hann Grænland í þrjú ár en sneri þá aftur til Íslands. Sumarið eftir nam hann land á Grænlandi. 25 skip fylgdu honum af Íslandi til Grænlands en einungis 14 komust á leiðarenda. Hin týndust í hafi eða sneru við. Landnemarnir settust að á vesturströnd Grænlands og var þetta landnám framhald landnámsins á Íslandi. Siglingar til Grænlands lögðust af í byrjun 15. aldar og þegar landkönnuðir komu þangað tveimur öldum síðar fundu þeir aðeins hrundar bæjarústir. Sagnir Inúíta segja frá mönnum á stórum skipum er hafi rænt mörgu norrænu fólki. Þó eru afdrif meirihluta landnámsmannanna á Grænlandi mönnum enn ráðgáta.
Í L'Anse aux Meadows á Nýfundnalandi í Kanada fundust húsarústir norrænna manna; myndin sýnir endurgerðar byggingar þeirra. (At L'Anse aux Meadows in Newfoundland in Canada were found ruins of a Nordic settlement; the picture shows their reconstructed houses).
Skömmu eftir landnámið á Grænlandi var Bjarni Herjólfsson á leið þangað en hraktist af leið og sá lönd á austurströnd Norður-Ameríku. Leifur Eiríksson, síðar nefndur Leifur heppni, fór í könnunarferð til þessara landa og nefndi þau Markland, Helluland og Vínland. Vínlandsferðir urðu ekki tilefni landnáms á meginlandi Ameríku en landkönnuðirnir reistu sér þar skála og komu sér fyrir á meðan þeir könnuðu landið.
Talið er víst að Helluland sé Baffinsland og Markland sé Labrador en fræðimenn greinir á um hvar Vínlands sé að leita. Nokkrir hafa bent á Nýja England sem líklegasta staðinn en þeirri skoðun hefur vaxið fylgi að Vínland sé á Nýfundnalandi eftir að rústir fundust í L'Anse-aux-Meadows á norðurodda Nýfundnalands sem þykja benda til vistar norrænna manna þar. Nokkrir hafa einnig bent á að St. Lawrence flói kæmi einnig til greina í þessu sambandi.
Sagt er frá ferðum norrænna manna til Grænlands og Vínlands í Grænlendinga sögu og Eiríks sögu rauða.
Content, including images, © Stofnun Sigurður Nordals, 2004. Used with permission.
TEI markup © Board of Regents of the University of Wisconsin System, 2004. All rights reserved.
Those interested in using these texts for any purpose not covered under Fair Use must seek the permission of Stofnun Sigurður Nordals and the University of Wisconsin-Madison Libraries.
