University of Wisconsin Digital Collections
Link to University of Wisconsin Digital Collections
Link to University of Wisconsin Digital Collections
Icelandic Online Dictionary and Readings

Carry On Icelandic: Culture [selections] (2004)

View all of Auðlindin í sjónum - The Riches of the Sea

Next subsection Next



 

Auðlindin í sjónum

Miðin umhverfis Ísland eru einhver hin gjöfulustu í heimi. Landgrunnið er mjög víðáttumikið, um 758 þúsund ferkílómetrar að stærð, og þar blandast heitir og kaldir hafstraumar. Það skapar kjöraðstæður fyrir þá fæðumyndun sem er nauðsynleg fyrir viðgang fiskistofnanna.

Color photograph

Smábátaeigendur keppa um fiskinn við togarana og stærri skipin (Fishermen on small boats compete with owners of trawlers and large boats for the right to catch the fish).

Klak- og ætisslóðir fjölmargra nytjafiska eru á íslenska landgrunninu og ekki færri en 293 mismunandi fisktegundir hafa verið skráðar á Íslandsmiðum. Tíu tegundir mynda uppistöðuna í fiskveiðunum, en samtals eru um 40 tegundir nýttar.

Auðlegð hafsins byggist á viðkvæmu samspili vistkerfa og Íslendingar vita að ekki einungis náttúruhamfarir og breytingar á veðurfari geta haft alvarlegar afleiðingar í för með sér, heldur einnig slæm umgengni við auðlindina.

Next subsection Next




Go up to Top of Page