University of Wisconsin Digital Collections
Link to University of Wisconsin Digital Collections
Link to University of Wisconsin Digital Collections
Icelandic Online Dictionary and Readings

Carry On Icelandic: Culture [selections] (2004)

View all of . . .og íss - . . .and ice

Next subsection Next



 

. . .og íss

Ísinn er óaðskiljanlegur hluti norðurslóða, hvort sem er á sjó eða landi. Jöklar þekja álíka mikinn hluta lands og hraun þau sem runnið hafa eftir að ísöld lauk, eða um 11% af flatarmáli þess. Stærsti jökull landsins, og jafnframt Evrópu, er Vatnajökull. Talið er að undir honum liggi fimm megineldstöðvakerfi.

Aðrir stórir jöklar eru Hofsjökull og Langjökull á hálendi Íslands. Þekktur er einnig Snæfellsjökull yst á Snæfellsnesi og eru hlíðar hans að mestu þaktar hrauni frá nútíma.

Color photograph

Í jöklaferð (On a glacier tour).

Í augum landsmanna eru jöklarnir ekki bara kaldur klaki heldur eru þeir sveipaðir nokkrum ævintýraljóma, sem m.a. kemur fram í því að margar þjóðsögur hafa spunnist um þá bæði fyrr og nú.

Snæfellsjökull hefur verið vinsælt umfjöllunarefni rithöfunda. Kunn er skáldsaga franska vísindaskáldsagnahöfundarins Jules Verne; Le Voyage au centre de la terre, frá 1864, sem kom út í íslenskri þýðingu 1944 undir heitinu Leyndardómar Snæfellsjökuls. Hún fjallar um ævintýraför inn í jökulinn.

Bárðar saga Snæfellsáss er Íslendingasaga í nokkrum ýkjustíl. Hún segir frá Bárði sem er bergbúaættar. Hann flýr Noreg og sest að undir Snæfellsjökli. Hann gengur að lokum í jökulinn og gerist landvættur.

Nóbelsskáldið Halldór Kiljan Laxness skrifaði Kristnihald undir jökli 1968 sem Guðný Halldórsdóttir kvikmyndaði en kvikmyndagerðarmenn hafa einmitt tekið jökulinn í sína þjónustu og ljósmyndarar og auglýsingagerðarfólk leggja gjarnan leið sína á jökulinn og í aðrar perlur íslenskrar náttúru.

Vinsælt er einnig að fara í fjalla- og jöklaferðir á sérútbúnum bílum og njóta kyrrðar og fegurðar í faðmi fjallanna.

Next subsection Next




Go up to Top of Page