Carry On Icelandic: Culture [selections] (2004)
View all of Land elds. . . - Land of Fire. . .
Land elds. . .
"Að undanförnu hefur staðið yfir umbrotahrina í Mýrdalsjökli og segja vísindamenn að greinilega sé um aukna jarðhitavirkni að ræða undir jöklinum og telja víst að eldgos sé á næsta leiti."
Fréttir á borð við þessa eru næsta algengar í íslenskum fjölmiðlum, enda hefur landið nær allt myndast við jarðelda og hafa orðið gos að meðaltali á fimm ára fresti á sögulegum tíma á Íslandi. Virkar eldstöðvar skipta hundruðum.
Árið 1973 gaus í Heimaey í Vestmannaeyjum og fóru mörg íbúðarhús undir hraun. (In 1973there was an eruption in Heimaey and many houses were buried under lava).
Ísland er meðal virkustu eldfjallalanda heims og hafa eldgos tíðum valdið miklu tjóni í byggðum og á gróðurlendi landsins á sögulegum tíma. Mikið tjón varð 1973 þegar gaus í Heimaey í Vestmannaeyjum með þeim afleiðingum að fjórðungur bæjarins lagðist í eyði og atvinnurekstur stöðvaðist í nær heilt ár.
Af fjölmörgum eldstöðvum landsins er Hekla í Rangárvallasýslu þekktust. Talið er að Hekla hafi gosið 16 sinnum eftir landnám, fyrst 1104 en það gos lagði Þjórsárdal í eyði. Á 20. öld gaus þetta virka eldfjall fimm sinnum. Hekla gýs bæði gjósku og hrauni og hefur gjóskan valdið miklu tjóni á gróðri í aldanna rás. Á miðöldum stóð mönnum stuggur af henni því hún var talin vera dyr helvítis. Hekla gaus síðast árið 2000.
Content, including images, © Stofnun Sigurður Nordals, 2004. Used with permission.
TEI markup © Board of Regents of the University of Wisconsin System, 2004. All rights reserved.
Those interested in using these texts for any purpose not covered under Fair Use must seek the permission of Stofnun Sigurður Nordals and the University of Wisconsin-Madison Libraries.
