Carry On Icelandic: Culture [selections] (2004)
View all of Hvalir - Whales
Hvalir
Hvalir hafa löngum heillað menn eins og margar sagnir eru til vitnis um. Þeir hafa óttast þessa ógnarstóru konunga undirdjúpanna og heillast af þeim í senn. Margar sagnir greina frá hetjulegum viðureignum við hvali og frægust er líklega skáldsagan Moby Dick eftir ameríska rithöfundinn Herman Melville.
Keikó
Frægastur íslenskra hvala er háhyrningurinn Keikó. Fyrir rúmlega tuttugu árum var veiddur hér við land háhyrningur í þeim tilgangi að verða sýningargripur á sædýrasafni í Bandaríkjunum. Þar var hann nefndur Keikó og lék m.a. í kvikmyndinni Free Willy sem fjallar um hval sem er fangi í sædýrasafni en öðlast svo frelsi. Þessi mynd hafði mikil áhrif á álit almennings á hvalveiðum og mörg samtök voru stofnuð til verndar hvölum. Saga Keikós þótti minna svo mjög á sögu hvalsins Willy að ákveðið var að flytja hann aftur til heimkynna sinna við Íslandsstrendur. Hafinn var undirbúningur þessa risastóra verkefnis og háhyrningurinn Keikó fluttur með flugvél til Heimaeyjar í Vestmannaeyjum í september 1998. Eftir nokkurn aðlögunartíma í sérstakri kví, var honum sleppt.
Mikil umfjöllun hefur verið um þetta mál á Íslandi og margir þeirrar skoðunar að þetta sé fulllangt gengið enda telja margir að tímabært sé fyrir Íslendinga að hefja hvalveiðar á ný. Aðrir benda á að sagan af Keikó sýni mönnum að unnt sé að hagnast á hvölum án þess að til hvalveiða komi, það sé mikill áhugi á hvölum í heiminum nú sem nýta megi á annan hátt.
Hvalaskoðun
Allt frá miðöldum voru hér stundaðar hvalveiðar, eða til ársins 1986 en þá hættu Íslendingar hvalveiðum nema í vísindaskyni. Árið 1989 var öllum hvalveiðum hætt.
Nú eru hvalaskoðunarferðir að verða stöðugt vinsælli og eru þær sérstök grein innan ferðaþjónustunnar. Þeir sem standa fyrir hvalaskoðunarferðum eru andvígir hvalveiðum en aðrir benda á að þetta tvennt geti mætavel farið saman.
Content, including images, © Stofnun Sigurður Nordals, 2004. Used with permission.
TEI markup © Board of Regents of the University of Wisconsin System, 2004. All rights reserved.
Those interested in using these texts for any purpose not covered under Fair Use must seek the permission of Stofnun Sigurður Nordals and the University of Wisconsin-Madison Libraries.

