University of Wisconsin Digital Collections
Link to University of Wisconsin Digital Collections
Link to University of Wisconsin Digital Collections
Icelandic Online Dictionary and Readings

Carry On Icelandic: Culture [selections] (2004)

View all of Íslenski hesturinn - The Icelandic Horse

Next subsection Next



 

Íslenski hesturinn

Íslenski hesturinn er einstakur í sinni röð. Hann hefur verið ræktaður allt frá landnámsöld og vegna einangrunar landsins hefur hann ekki blandast öðrum tegundum. Hann hefur aðlagast kaldri veðráttunni þannig að á veturna er feldur hans þykkur og úfinn en á vorin fellir hann vetrarhárin og er þá gljáandi og mjúkur. Íslenski hesturinn er fremur smávaxinn, viljugur og lipur og er stundum talinn til smáhesta. Hann þykir góður reiðhestur og er eini hesturinn sem býr yfir öllum fimm gangtegundum hesta; tölti, skeiði, brokki, stökki og fetgangi.

Color photograph

Hestaferð í fögru sólarlagi (Horseback riding into the sunset).

Þótt íslenski hesturinn sé smávaxinn er hann sterkur og þróttmikill. Hann hefur löngum verið nefndur þarfasti þjónn mannsins í landi sem áður fyrr var oft erfitt yfirferðar og má segja að allir flutningar á landi hafi farið fram með aðstoð þessa þarfa þjóns.

Enn gegnir íslenski hesturinn veigamiklu hlutverki í lífi margra Íslendinga. Í nútímasamfélaginu er hann ekki lengur þarfasti þjónninn en hestamennska er nú vinsælt sport, stunduð af mjög mörgum hvort sem er í sveitum, bæjum eða borg. Mikill fjöldi hesta er í landinu, þeim til ama sem hafa áhyggjur af ofbeit og þeim náttúruspjöllum sem hún veldur, en hinum til ómældrar ánægju sem hafa gaman af hestamennsku. Hestar eru á flestum sveitabæjum og sérstök hesthúsahverfi eru nánast hvarvetna í þéttbýli. Íslenski hesturinn er á vissan hátt nokkurs konar tengiliður við sveitamenninguna sem er á hröðu undanhaldi í landi ört vaxandi tækniþróunar og borgarmyndunar.

Next subsection Next




Go up to Top of Page