Carry On Icelandic: Culture [selections] (2004)
View all of Dýralíf - Animal Life
Dýralíf
Vegna einangrunar landsins hafa ekki orðið miklar breytingar á dýralífi þess. Flestar dýrategundir eru af erlendum uppruna og talið er að einungis ein spendýrategund, tófan, hafi haft hér búsetu á undan manninum. Aðrar spendýrategundir hafa komið með honum við landnám. Þeirra á meðal er sauðkindin, sem átti eftir að halda lífinu í mannfólkinu á erfiðleikatímum, og hesturinn sem er líklega þekktastur íslenskra dýra.
Hreindýr voru flutt til landsins á 18. öld og eru nú um 3000 talsins. Þau eru einu dýrin af hjartarætt á Íslandi og lifa á heiðunum norðan og austan Vatnajökuls.
Fiskisæld er mikil í íslenskum ám og vötnum og er lax- og silungsveiði vinsælt sport. Þá er fuglalíf fremur fjölskrúðugt í landinu og við strendur þess. Í hafinu umhverfis landið er fjölbreytt lífríki og þangað hafa Íslendingar jafnan sótt lífsbjörg sína.
Content, including images, © Stofnun Sigurður Nordals, 2004. Used with permission.
TEI markup © Board of Regents of the University of Wisconsin System, 2004. All rights reserved.
Those interested in using these texts for any purpose not covered under Fair Use must seek the permission of Stofnun Sigurður Nordals and the University of Wisconsin-Madison Libraries.

