Carry On Icelandic: Culture [selections] (2004)
View all of Vestmannaeyjar
Vestmannaeyjar
Vestmannaeyjar er eyjaklasi úti fyrir suðurströnd Íslands. Til Vestmannaeyja teljast allt að 15-18 eyjar og allt að 30 sker og drangar. Eyjarnar mynduðust allar við eldgos og eru taldar sérstakt eldstöðvakerfi með miðju á Heimaey. Vitað er um fjögur gos í Vestmannaeyjum frá landnámi; hið fyrsta 1637 og það síðasta 1973 þegar gos varð í Heimaey með þeim afleiðingum að fjórðungur bæjarins eyðilagðist.
Innsiglingin inn í Vestmannaeyjahöfn er vel varin af náttúrunnar hendi (The seaward approach into Vestmannaeyjar Harbour is well protected by natural features).
Flestar eyjanna eru sæbrattar og erfiðar uppgöngu, nema fyrir vana fjallgöngumenn. Margar þeirra eru með lóðréttum hamraveggjum en grasi grónar að ofanverðu. Mikil fugla- og eggjataka er í Eyjum og er þar árlega veitt mikið af fugli, aðallega lunda.
Vestmannaeyjabær er á Heimaey en hún er stærsta eyja Vestmannaeyja og er meðal mikilvægustu fiskibæja Íslands.
Content, including images, © Stofnun Sigurður Nordals, 2004. Used with permission.
TEI markup © Board of Regents of the University of Wisconsin System, 2004. All rights reserved.
Those interested in using these texts for any purpose not covered under Fair Use must seek the permission of Stofnun Sigurður Nordals and the University of Wisconsin-Madison Libraries.
