Carry On Icelandic: Culture [selections] (2004)
View all of Akureyri
Akureyri
Akureyri er höfuðstaður Norðurlands og þriðji stærsti bær á Íslandi, með um það bil 15.000 íbúa (2000). Akureyri liggur við vestanverðan botn Eyjafjarðar. Innsti hluti fjarðarins, Akureyrarpollur eða Pollurinn, er ein besta höfn landsins frá náttúrunnar hendi. Fullvíst er að Akureyri á hafnarskilyrðum tilveru sína að þakka, fremur öðru. Akureyri er mikill útgerðarbær og lifa um 10% íbúa bæjarins af fiskveiðum og fiskvinnslu.
Ekki er vitað hvenær byggð og verslun hófst á Akureyri en aðalverslunarstaður Norðurlands var að Gásum, 14 km norðan bæjarins, að minnsta kosti fram um 1400. Byggðin mun svo smám saman hafa færst innar. Ekki er um fasta byggð að ræða á Akureyri fyrr en um miðja 18. öld. Bærinn byggðist fyrst sem verslunarstaður og enn er þar mikil verslun, enda nærliggjandi sveitir fjölmennar.
Akureyri er nú mesti iðnaðarbær landsins en þar er jafnframt geysimikill ræktunaráhugi. Garðar prýða bæinn og þeir, ásamt hávöxnum trjám á íslenskan mælikvarða, setja fallegan svip á bæinn að sumarlagi.
Akureyri er stundum nefnd skólabærinn, enda hefur þar verið öflugt mennta- og menningarlíf um langan aldur. Þar eru tveir framhaldsskólar, myndlistaskóli, tónlistarskóli og háskóli og þar er starfrækt menntasmiðja kvenna. Þar er einnig starfandi leikfélag, ýmsir kórar og sinfóníuhljómsveit, svo óhætt er að segja að menningar- og listalíf í bænum sé blómlegt. Þá er íþróttalífið fjölbreytt. Tvö knattspyrnufélög eru starfrækt í bænum, sundfélag, skautafélag og golfklúbbur, svo eitthvað sé nefnt. Þá er Akureyri einn helsti skíðabær landsins.
Content, including images, © Stofnun Sigurður Nordals, 2004. Used with permission.
TEI markup © Board of Regents of the University of Wisconsin System, 2004. All rights reserved.
Those interested in using these texts for any purpose not covered under Fair Use must seek the permission of Stofnun Sigurður Nordals and the University of Wisconsin-Madison Libraries.

