University of Wisconsin Digital Collections
Link to University of Wisconsin Digital Collections
Link to University of Wisconsin Digital Collections
Icelandic Online Dictionary and Readings

Carry On Icelandic: Culture [selections] (2004)

View all of Ísafjörður

Next subsection Next



 

Ísafjörður

Stærsti bær Vestfjarða er Ísafjörður með um það bil 3.000 íbúa (2000) Ísafjörður stendur við Skutulsfjörð sem er vestasti fjörðurinn er gengur til suðurs úr Ísafjarðardjúpi. Hann er girtur háum og bröttum fjöllum á báðar hliðar.

Verslun á sér alllanga sögu á Ísafirði. Árið 1569 höfðu kaupmenn tekið sér fasta búsetu á eyrinni, sem bærinn stendur enn á, og heimildir eru um verslunarhús úr timbri frá fyrri hluta 17. aldar. Enn standa nokkur hús frá 18. öld, sem nú hafa verið friðlýst, og setja þau sérstakan svip á bæinn. Lítið er um svo gömul hús á Íslandi.

Color photograph

Í Neðstakaupstað á Ísafirði er varðveitt elsta og heillegasta húsaþyrpingin á Íslandi frá 18. öld (At Neðstikaupstaður in Ísafjörður mostly intact, the oldest cluster of houses from the 18th century is preserved,).

Enn er Ísafjörður helsti verslunarstaður Vestfirðinga en þjónar þeim einnig hvað varðar skólagöngu unglinga og ýmsa þjónustu aðra. Þá hefur bærinn lengi verið útgerðarbær.

Á Vestfjörðum er meiri fjöldi nýbúa en annars staðar á landinu, eða um 7% íbúa fjórðungsins. Á landinu öllu er hlutfall nýbúa hins vegar 4%. Nýbúar frá 44 mismunandi þjóðum eru nú á Vestfjörðum. Frá árinu 1997 hafa Vestfirðingar haldið sérstaka þjóðahátíð sem hefur notið mikilla vinsælda og orðið til að vekja athygli á þeirri menningarfjölbreytni sem nú er að verða á Vestfjörðum og landinu öllu.

Next subsection Next




Go up to Top of Page