University of Wisconsin Digital Collections
Link to University of Wisconsin Digital Collections
Link to University of Wisconsin Digital Collections
Icelandic Online Dictionary and Readings

Carry On Icelandic: Culture [selections] (2004)

View all of Egilsstaðir

Next subsection Next



 

Egilsstaðir

Egilsstaðir, með um það bil 1.500 íbúa (2000), er miðstöð samgangna á Austfjörðum. Hringvegurinn liggur í gegnum bæinn og þaðan er nánast jafn langt til Reykjavíkur, hvort sem er norður eða suður um land.

Color photograph

Egilsstaðir og Lagarfljótið (Egilsstaðir and Lagarfljót).

Egilsstaðir eru á Fljótsdalshéraði, austan Lagarfljóts. Margar frásagnir eru af kynjaskepnum í Lagarfljóti. Ein þeirra segir frá Lagarfljótsorminum sem sagður er halda til í fljótinu og gera vart við sig stöku sinnum. Hans er fyrst getið í annálum 1345. Þegar hann skaut upp kryppum úr fljótinu var það talið boða stórtíðindi. Nú hefur gas fundist á tveimur stöðum, sem streymir upp úr vatninu, og þykir þar komin skýringin á Lagarfljótsorminum.

Við sunnanvert Lagarfljót er Hallormsstaðarskógur, stærsti skógur á Íslandi. Skógræktarstöð var stofnuð þar 1903 og þar eru nú framleiddar trjáplöntur og gerðar tilraunir með erlendar tegundir.

Next subsection Next




Go up to Top of Page