University of Wisconsin Digital Collections
Link to University of Wisconsin Digital Collections
Link to University of Wisconsin Digital Collections
Icelandic Online Dictionary and Readings

Carry On Icelandic: Culture [selections] (2004)

View all of Höfuðborgin Reykjavík - Reykjavík, the Capital

Next subsection Next



 

Höfuðborgin Reykjavík

Suðvesturhorn Íslands er þéttbýlasti hluti þess og þar er höfuðborgin Reykjavík, norðlægasta höfuðborg jarðar. Reykjavík stendur við suðaustanverðan Faxaflóa. Veðurfar í Reykjavík er milt og þar er fremur lítill munur sumars og vetrar miðað við ýmsa aðra landshluta. Þar er einnig fremur votviðrasamt og rignir að meðaltali 200 daga á ári.

Color photograph

Frá Árbæjarlaug í Reykjavík. Sund er vinsæl tómstundaiðkun og á góðum sólardögum eru sundstaðir yfirfullir (From Árbæjarlaug in Reykjavík. Swimming is a popular past-time activity, on sunny days the swimming pools soon become overcrowded).

Upphaf byggðar í Reykjavík er rakið til þess er fyrsti landnámsmaðurinn, Ingólfur Arnarson, settist þar að. Um það segir svo í Landnámabók sem er talin frá fyrri hluta 12. aldar og elsta heimild um landnám Íslands:

Þá er Ingólfur sá Ísland, skaut hann fyrir borð öndvegissúlum sínum til heilla; hann mælti svo fyrir, að hann skyldi þar byggja, er súlurnar kæmu á land. (Íslendingabók og Landnáma. Rvk. 1986, bls. 42)

Hann sendi þræla sína að leita súlnanna, tók sér búsetu þar sem þær fundust og nefndi staðinn Reykjavík. Fornleifarannsóknir á þeim stað sem hann er sagður hafa reist bæ sinn styðja þá hefðbundnu skoðun að þar hafi búið fyrstu íbúar Reykjavíkur.

Um miðja 18. öld hófst skipuleg uppbygging þéttbýlis í Reykjavík. Bærinn öðlaðist kaupstaðarréttindi 1786, þá voru íbúar hans 167. Í upphafi 20. aldar voru þeir 5000 en nú er Reykjavík langstærsti þéttbýlisstaður landsins með yfir 100.000 íbúa og yfir 60% þjóðarinnar býr á höfuðborgarsvæðinu öllu.

Kópavogur, sem byggðist eftir seinna stríð, er nánast samvaxinn Reykjavík og samfelld byggð er yfir í Hafnarfjörð, gamlan útgerðar- og verslunarbæ, sem er nokkrum kílómetrum sunnar.

Í um 50 km fjarlægð suður af Reykjavík er kaupstaðurinn Keflavík. Skammt suður af Keflavík er Keflavíkurflugvöllur. Hann er stærsti flugvöllur á Íslandi, byggður af herliði Bandaríkjamanna í seinni heimsstyrjöldinni og tekinn í notkun 1943. Við Keflavíkurflugvöll er bandarísk herstöð.

Utan Reykjavíkur er byggðin dreifð um láglendið meðfram ströndinni og borgin heldur áfram að stækka á kostnað landsbyggðarinnar. Miklir fólksflutningar utan af landi til borgarinnar hafa átt sér stað á undanförnum árum og virðist ekkert lát þar á. Þykir mörgum sem stefni í að talað verði um borgríkið Reykjavík fremur en þjóðríkið Ísland.

Next subsection Next




Go up to Top of Page