Carry On Icelandic: Culture [selections] (2004)
View all of Mannfjöldi á Íslandi - The Population of Iceland
Mannfjöldi á Íslandi
Íbúar á Íslandi eru um 280.000 (2002). Mikill meirihluti landsmanna býr á höfuðborgarsvæðinu. Þar hefur orðið stöðug fólksfjölgun hin síðari ár, og raunar á öllu suðvesturhorni landsins. Þessu fylgir gríðarleg byggðaröskun, því fólki fækkar að sama skapi í öðrum landshlutum. Á höfuðborgarsvæðinu búa yfir 60% landsmanna, á Norðurlandi eystra eru tæp 10% íbúanna og um 7,5% á Suðurlandi en í öðrum landshlutum er hlutfallið enn lægra.
Mikil einbýlishúsamenning er á Íslandi. Flestir kjósa að búa í einbýlishúsi eða raðhúsi en minna er um fjölbýlishús. Þetta hefur m.a. haft það í för með sér að borgin teygir sig yfir fremur stórt landsvæði miðað við íbúafjölda og háreistar byggingar eru heldur fágætar. Fremur lítið er um leiguhúsnæði og húsaleiga á höfuðborgarsvæðinu hefur verið mjög há.
Content, including images, © Stofnun Sigurður Nordals, 2004. Used with permission.
TEI markup © Board of Regents of the University of Wisconsin System, 2004. All rights reserved.
Those interested in using these texts for any purpose not covered under Fair Use must seek the permission of Stofnun Sigurður Nordals and the University of Wisconsin-Madison Libraries.

