Carry On Icelandic: Culture [selections] (2004)
View all of Örar þjóðfélagsbreytingar - Rapid Social Change
Örar þjóðfélagsbreytingar
Íslendingar voru meðal fátækustu þjóða Evrópu á seinni hluta 19. aldar. Landbúnaður var aðalatvinnuvegurinn frá landnámi og fram á 20. öld. Hann er, eins og gefur að skilja, viðkvæmur fyrir sveiflum í náttúrunni og hart árferði af völdum kulda eða náttúruhamfara hafði því oft hungursneyð í för með sér.
Allur þorri fólks bjó í sveitum og bóndabærinn var hornsteinn samfélagsins. Með iðnvæðingu urðu fyrst breytingar á íslenskum samfélagsháttum, þegar vélvæðing fiskiskipaflotans hófst og farið var að flytja inn togara í byrjun aldarinnar. Þessu fylgdu breytingar á atvinnuháttum og búsetu. Fólk flutti úr sveitum í þorp til að stunda margvísleg störf tengd útvegi, en áður hafði vinna við fisk verið árstíðabundin.
Enn frekari breytingar urðu í atvinnu- og byggðaþróun með seinni heimsstyrjöldinni. Það má með sanni segja að hún hafi markað upphaf nútímavæðingar á Íslandi vegna þeirra miklu efnahagsbreytinga sem hersetan hafði í för með sér.
Landið var hernumið af Bretum 1940 og Ameríkanar tóku svo við af þeim 1941. Hersetan hafði mikla efnahagslega þýðingu fyrir þjóðina. Vegir voru lagðir, flugvellir byggðir o.s.frv., og margvíslega þjónustu þurfti að inna af hendi við herliðið. Það varð, með öðrum orðum, mikil eftirspurn eftir vinnuafli og fjöldi Íslendinga fékk nú vinnu og hana vel launaða. Auk þessa hækkaði fiskverð vegna aukinnar eftirspurnar á erlendum markaði. Allt stuðlaði þetta að hagsæld þjóðarinnar þótt kaldhæðnislegt sé.
Búskapur var áður fyrr meginuppistaða íslensks efnahags (Farming and housekeeping was until the 20th century the main-stay of Iceland's economy).
Þessar breyttu aðstæður höfðu áhrif á alla félagsgerð hins íslenska samfélags og fólksflutningar utan af landi til Reykjavíkur urðu meiri en nokkru sinni. Dreifbýlissamfélagið breyttist á skömmum tíma í borgarsamfélag og flestir Íslendingar búa nú í þéttbýli.
Nú lifa aðeins um 5% þjóðarinnar á landbúnaði en 83% árið 1860. Helsta grein hans er kvikfjárrækt. Nýjar búgreinar hafa komið fram á undanförnum árum, eins og loðdýrarækt, fiskeldi og ræktun nytjaskóga.
Handverk og smáiðnaður var stundaður hér fram á tuttugustu öld en með vélvæðingu jókst atvinnuþátttaka í iðnaði verulega. Flestir starfa í matvælaiðnaði, byggingariðnaði og stóriðju, auk þess sem hugbúnaðarfyrirtækjum vex mjög fiskur um hrygg. Reynt hefur verið að stuðla að fjölbreyttari atvinnuháttum, meðal annars með aukinni stóriðju sem hart er deilt um.
Enn er þó sjórinn dýrmætasta auðlind Íslendinga og fiskafurðir eru mikilvægasta útflutningsvara þjóðarinnar. Íslenska hagkerfið er því mjög háð sjávarútvegi, enda skapa sjávarafurðir um 70% allra útflutningstekna þjóðarinnar.
Það er því óhætt að segja að fiskimiðin umhverfis landið séu sú undirstaða góðra lífskjara þjóðarinnar sem skipað hefur Íslendingum í raðir tekjuhæstu þjóða heims. Hvort menn eru svo sammála um nýtingu auðlindarinnar og aðganginn að henni er annað mál.
Content, including images, © Stofnun Sigurður Nordals, 2004. Used with permission.
TEI markup © Board of Regents of the University of Wisconsin System, 2004. All rights reserved.
Those interested in using these texts for any purpose not covered under Fair Use must seek the permission of Stofnun Sigurður Nordals and the University of Wisconsin-Madison Libraries.
