University of Wisconsin Digital Collections
Link to University of Wisconsin Digital Collections
Link to University of Wisconsin Digital Collections
Icelandic Online Dictionary and Readings

Carry On Icelandic: Culture [selections] (2004)

View all of Alþjóðasamstarf - International Cooperation

Next subsection Next



 

Alþjóðasamstarf

Ísland gekk til liðs við Sameinuðu þjóðirnar 1946 og tók þátt í stofnun OECD, Evrópuráðsins, NATO og fleiri alþjóðastofnana. Seinna varð Ísland aðili að GATT, UNESCO, EFTA og EES.

Ísland hefur einnig á síðari árum tekið í auknum mæli þátt í friðargæslu á vegum Sameinuðu þjóðanna og NATO. Fram að þessu hafa læknar, hjúkrunarlið, verkfræðingar og löggæslumenn verið fulltrúar Íslands í þessu starfi.

Color photograph

Íslenska hjúkrunarkonan Þórunn Jónsdóttir í búningi breska hersins að störfum á vegum NATO í SFOR í Bosníu (Icelandic nurse Þórunn Jónsdóttir in a British Army uniform working for NATO in SFOR in Bosnia).

Íslendingar eiga ekki aðild að Evrópusambandinu. Stjórnvöld hafa fram að þessu verið mótfallin aðild, meðal annars af ótta við að aðild lítillar þjóðar að stórri evrópskri efnahagsheild geti veikt þjóðerni hennar og menningu. Íslendingar ráða yfir auðugum fiskimiðum sem þeir byggja afkomu sína að verulegu leyti á.

Margir Íslendingar eru þó þeirrar skoðunar að aðild hafi ótvíræða kosti í för með sér, auk þess sem aðildarleysi geti leitt af sér efnahagslega og pólitíska einangrun og þá sé hagvöxturinn í hættu.

Next subsection Next




Go up to Top of Page