University of Wisconsin Digital Collections
Link to University of Wisconsin Digital Collections
Link to University of Wisconsin Digital Collections
Icelandic Online Dictionary and Readings

Guðmundur Hilmarsson / Örugglega eitt af þeim betri (Mánudaginn 22. mars, 2004)

View all of Eiður Smári Guðjohnsen skoraði frábært mark fyrir Chelsea gegn Fulham: Örugglega eitt af þeim betri

Next subsection Next



 

[Subsection]

Þetta var tólfta mark Eiðs Smára á leiktíðinni og það þriðja í jafnmörgum deildarleikjum sem hann spilar en hann var einnig á skotskónum í leikjunum gegn Arsenal og Manchester City í lok febrúar en fékk hvíld í leiknum gegn Bolton 13. mars þar sem hann tók út leikbann

"Ég smellhitti tuðruna og það var ansi gaman að sjá boltann fara í netið. Þetta var ágætasta mark og örugglega eitt af þeim betri sem ég hef skorað," sagði Eiður Smári við Morgunblaðið í gær en hann var þá nýkominn af léttri æfingu hjá Chelsea sem hóf í gær undirbúning fyrir fyrri leikinn gegn Arsenal í Meistaradeildinni sem fram fer á Stamford Bridge á miðvikudagskvöldið.

Next subsection Next




Go up to Top of Page