University of Wisconsin Digital Collections
Link to University of Wisconsin Digital Collections
Link to University of Wisconsin Digital Collections
Icelandic Online Dictionary and Readings

Kristín Heiða Kristinsdóttir / Jól í torfbæ (Laugardaginn 29. nóvember, 2003)

View all of Jól í torfbæ

Previous Previous subsection

Next subsection Next



 

Konur fengu mjöðm en karlar læri

Þórey segir jólamatinn hafa samanstaðið af hangiketi, hnoðkökum, flatkökum úr rúgmjöli og kleinum. Allt var þetta matreitt á hlóðum og eldiviðurinn var skán, mór og tré og það útheimti heilmikla vinnu að verða sér úti um efnið. Skán þurfti að stinga út úr fjárhúsum og heimilisfaðirinn sótti tré út á Haukadalsheiði og reiddi heim á hestum sínum í böggum og stundum gat verið snjóþungt og illfært í desember. Mórinn var ristur upp í mýrlendi að sumri, þurrkaður og geymdur innivið til veturs. Þórey og systkini hennar þurftu oft að bera mó á bakinu heim frá mógröfunum og þá voru litlir barnslíkamar oft þreyttir að kveldi. En allt var þetta erfiðisins virði því allir vildu jú fá góðan jólamat og hangiketið var reykt heimavið og til þess þurfti líka eldivið.

Á aðfangadag var hátíð í litla bænum þegar jólamaturinn var skammtaður af húsfreyjunni. "Þá skammtaði mamma hverjum manni ríflega því maturinn átti að duga hverjum og einum allt fram á þrettándann. Hangikjötsbitunum var þannig útdeilt að dömurnar fengu mjaðmarstykki en karlarnir læri. Okkur fannst mikil tilbreyting í kleinunum því þær sáust ekki á borðum hversdags. Mömmu var mikið í mun að sjá um að skammta jólamatinn og ég man að ein jólin var hún svo veik að hún gat ekki staðið í fæturna en hún lét það ekki stoppa sig heldur skammtaði matinn á hnjánum."

Previous Previous subsection

Next subsection Next




Go up to Top of Page