University of Wisconsin Digital Collections
Link to University of Wisconsin Digital Collections
Link to University of Wisconsin Digital Collections
Icelandic Online Dictionary and Readings

Brennu-Njáls saga [selections] (1996)

Previous Previous section

Next section Next



 

75

[ ... ]

Gunnar lætur flytja vöru þeirra bræðra til skips. Og þá er öll föng Gunnars voru til skips komin og skip var mjög búið þá ríður Gunnar til Bergþórshvols og á aðra bæi að finna menn og þakkaði liðveislu öllum þeim er honum höfðu lið veitt.

Annan dag eftir býr hann snemmendis ferð sína til skips og sagði þá öllu liði að hann mundi ríða í braut alfari og þótti mönnum það mikið en væntu þó tilkomu hans síðar. Gunnar hverfur til allra heimamanna sinna er hann var búinn og gengu menn út með honum allir. Hann stingur niður atgeirinum og stiklar í söðulinn og ríða þeir Kolskeggur í braut. Þeir ríða fram að Markarfljóti. Þá drap hestur Gunnars fæti og stökk hann af baki.

Honum varð litið upp til hlíðarinnar og bæjarins að Hlíðarenda. Þá mælti hann: "Fögur er hlíðin svo að mér hefir hún aldrei jafnfögur sýnst, bleikir akrar en slegin tún, og mun eg ríða heim aftur og fara hvergi."

"Ger þú eigi þann óvinafagnað," segir Kolskeggur, "að þú rjúfir sætt þína því að þér mundi engi maður það ætla. Og munt þú það ætla mega að svo mun allt fara sem Njáll hefir sagt."

"Hvergi mun eg fara," segir Gunnar, "og svo vildi eg að þú gerðir."

[ ... ]

Previous Previous section

Next section Next




Go up to Top of Page