University of Wisconsin Digital Collections
Link to University of Wisconsin Digital Collections
Link to University of Wisconsin Digital Collections
Icelandic Online Dictionary and Readings

Borgarísjaki austur af Grímsey (Miðvikudaginn 6. júní, 2001)

 

[Article]

Miðvikudaginn 6. júní, 2001 - Akureyri

Borgarísjaki austur af Grímsey

ÞAÐ var sjaldgæf sjón sem blasti við flugmönnum Flugfélags Íslands nú á dögunum þegar þeir voru í áætlunarflugi til Grímseyjar. Norður af eyjunni var á reki heljarstór borgarísjaki.

Color photograph

Morgunblaðið/Bjarni

ÞAÐ var sjaldgæf sjón sem blasti við flugmönnum Flugfélags Íslands nú á dögunum þegar þeir voru í áætlunarflugi til Grímseyjar.

Norður af eyjunni var á reki heljarstór borgarísjaki. Borgarísjakann rak síðan austur um og hefur stöðvast í bili, ótrúlega nærri eyjunni. Í fjarlægð séð lítur út sem alhvít eyja, ekki ósvipuð Grímsey að lögun, hafi skotið upp kollinum.

Borgarísjakinn er hvort teggja í senn fagur og ógnvekjandi þar sem hann rís úr hafi. Nú er bara að bíða og sjá hvað verður um þennan bláhvíta risa frá Grænlandsströndum. Elstu íbúar hér muna ekki eftir borgarísjaka af þessari stærðargráðu í mjög langan tíma. Borgarísjakinn var mjög stór en hann brotnaði í sundur á grynningunum neðan við bæinn Mánárbakka á Tjörnesi, þar sem þessi mynd var tekin snemma í gærmorgun. Jakinn hafði þá tekið stefnu af Grímseyjarsundi og upp í land.

© Morgunblaðið, 2004


Go up to Top of Page