University of Wisconsin Digital Collections
Link to University of Wisconsin Digital Collections
Link to University of Wisconsin Digital Collections
Icelandic Online Dictionary and Readings

Allsherjargoði vígður á Þingvöllum í gærkvöldi (Föstudaginn 27. júní, 2003)

 

[Article]

Föstudaginn 27. júní, 2003 - Innlendar fréttir

Allsherjargoði vígður á Þingvöllum í gærkvöldi

HILMAR Örn Hilmarsson var vígður allsherjargoði ásatrúarmanna á Þingvöllum við hátíðlega athöfn í gærkvöldi.

Color photograph

Color photograph

HILMAR Örn Hilmarsson var vígður allsherjargoði ásatrúarmanna á Þingvöllum við hátíðlega athöfn í gærkvöldi. Athöfnin hófst með því að allsherjargoði og aðrir goðar ásamt lögsögumanni gengu niður Almannagjá undir lúðrablæstri en uppi við Lögberg var tendraður hringur af útikertum sem göngumenn stigu inn í.

Jónína G. Harðardóttir Kjalnesingagoði helgaði blótið og lýsti griðum. Lögsögumaður las því næst upp lög Ásatrúarfélagsins og goðar fóru með erindi úr eddukvæðum.

Allsherjargoði sór síðan eið, mælt voru vígsluorð og flutti Hilmar svo stutta tölu. Að því loknu var gengið til Valhallar en göngumenn héldu á fánum allra 39 goðorðanna auk stærri fána fyrir hvern landshluta.

Siðfesta

Þegar að Valhöll var komið fór fram önnur vígsla, hin fyrsta sem allsherjargoði stóð fyrir, og nefndist hún siðfesta. Siðfesta er eins konar manndómsvígsla ásatrúarmanna, þeirra sem vilja staðfesta trú sína. Sá sem lætur vígjast með þeim hætti eyðir sólarhringnum áður en athöfnin fer fram einn úti í náttúrunni við lestur Hávamála. Að þeim tíma loknum á viðkomandi að nefna þau kvæði sem best eiga við hann og fer allsherjargoði með eitt kvæði og sá sem gengur í gegnum siðfestuna með annað. Þetta var í fyrsta sinn sem þessi athöfn er framkvæmd formlega hér á landi, í það minnsta á okkar dögum. Júlíus Samúelsson gekk í gegnum siðfestuna að þessu sinni og voru lesin hin kunnu erindi Hávamála Ungur var ek forðum og Deyr fé.

© Morgunblaðið, 2004


Go up to Top of Page