University of Wisconsin Digital Collections
Link to University of Wisconsin Digital Collections
Link to University of Wisconsin Digital Collections
Icelandic Online Dictionary and Readings

Magnús Grímsson, 1825-1860; Jón Árnason, 1819-1888 / Íslenzk æfintyri (1852)

Previous Previous section

Next section Next



    [p. 73]  

14. "Sagan af Bjarna Sveinssyni og Salvöru systur hans"

Maður hét Sveinn. Hann var bóndi norður í Skagafirði. Kvæntur var hann, en ekki er þess getið, hvað kona hans hét. Sveinn var maður vel efnaður. Hann átti tvö börn, sem sagan nefnir. Hét sonur hans Bjarni, en Salvör dóttir. Þau voru tvíburar, og unntust mjög. Þau voru þá um tvítugt, er þessi saga gerðist. Eitt vor um Jónsmessu fóru margir Skagfirðingar á grasafjall. Sveinn bóndi ætlaði líka að láta Bjarna son sinn fara. En þegar Salvör heyrði það, vildi hún líka fara. Foreldrar hennar vildu það ei, en létu þó loks tilleiðast fyrir bænastað hennar. Áttu nú bæði systkinin að fara á grasafjallið. En nóttina áður en þau fóru, dreymdi Svein bónda, að hann þóttist eiga fugla tvo hvíta, og þótti honum mjög vænt um fuglana. Þóttist hann nú missa kvennfuglinn, og saknaði hans mjög. Sveinn réði svo draum sinn, að hann mundi bráðum missa dóttir sína, og fékk það honum áhyggju mikillar. Vildi hann nú ei, að hún færi á grasafjallið, en hún linnti ekki fyr, en hún fékk að fara. Fóru þau nú systkinin, og segir ekki af ferðum þeirra.   [p. 74]   Gengu þau hinn fyrsta dag, og tíndu grös, eins og aðrir. En um nóttina varð Salvöru snögglega íllt, og gat hún ekki farið með fólkinu. Varð þá Bjarni eftir hjá systur sinni. Liðu þrír dagar, að Salvöru þyngdi einatt, og var Bjarni hjá henni. En hinn fjórða daginn fékk hann annan mann, til að vera hjá systur sinni, og gekk einsamall frá tjaldinu. Þegar hann hafði tekið grös í tínupoka sinn, settist hann undir stein einn mikinn, og studdi hönd undir kinn. Var hann að hugsa um sýki systur sinnar, og var mjög hugsjúkur og áhyggjufullur. En er hann hafði þar litla stund setið, heyrir hann dyn mikinn. Litast hann þá um, og sér, hvar tveir menn koma ríðandi. Þeir riðu mikinn, og stefndu að Bjarna. Reið annar þeirra rauðum hesti, og var hann á rauðum klæðum. Hinn var á dökkum klæðum, og reið brúnum hesti. Þeir stigu af baki við steininn, og heilsa Bjarna með nafni. Spurði þá rauðklæddi maðurinn, hvað að honum gengi. Bjarni vildi ekki segja það. Hinn rauðklæddi maður segir, að hann muni ei hafa verra af því, þó hann segi sér það. Bjarni segir homun þá frá sýki systur sinnar. Segir hann, að nú ætli samferðamennirnir   [p. 75]   að fara að fara heim, "og má ég þá verða hér einn eftir hjá systur minni, og veit ég ei, nær hún deyr í höndum mínum". "Bágt áttu, Bjarni", segir hinn rauðklæddi maður, "og vorkenni ég þér þetta. En viltu ekki gefa mér systur þína"? "Nei", segir Bjarni, "það má ég ekki. Ég veit engin deili á þér, og ei veit ég, hvaðan þú ert. Eða hvaðan ertu"? "Þig varðar ekki um það", segir rauðklæddi maðurinn. Tekur hann þá upp hjá sér gullroðna silfurdós, og var steinn í lokinu, og segir: "Viltu ekki selja mér systur þína fyrir dós þessa"? "Nei", segir Bajrni, "ég gef þér hana aldrei, hvað sem þú býður". "Jæja", segir maðurinn, "þyggðu samt dósina af mér til minnis um það, að þú hafir fundið mann á fjöllunum". Tekur þá Bjarni við dósinni, og þakkar honum gjöfina. Kveðja þá aðkomumennirnir Bjarna, og ríða burtu, en Bjarni fer heim að tjaldinu. Um morguninn fara samferðamenn hans heim, og er hann þá einn eftir hjá systur sinni. Var hann nú mjög hræddur um, að hinir ókunnu menn mundu stela systur sinni, og þorði ei að sofna. Vakir nú Bjarni þann dag allan; en um nóttina sækir mjög svefn á hann, og   [p. 76]   leggur hann sig niður hjá systur sinni. Spennir hann þá greipar um hana miðja, og ætlar, að ei skuli hún verða svo burtu numin, að hann verði ekki var við. Sofnar Bjarni nú fast; en er hann vaknar, er systir hans öll á burt. Verður hann nú angráður mjög, og leitar þann dag allan, en finnur hana ei. Tekur hann sig upp, og ríður heim um nóttina, og segir tíðindin. "Þetta grunaði mig snemma", segir Sveinn, "dregur æ nokkuð til þess, sem verða vill". Var þá safnað saman mönnum og leitað vandlega, en Salvör fannst eigi að heldur. Þótti mönnum þetta skaði mikill; því stúlkan var efnileg, og allra manna hugljúfi. Líður nú, til þess Bjarni er þrítugur að aldri. Var hann þá kvongaður, og farinn að búa. Eitt haust vantaði sauðamann hanns féð allt, og leitaði hann þess þrjá daga, enn fann ei. Segir þá Bjarni konu sinni að búa til vikunesti handa sér, og skó góða; því hann kvaðst ætla að leita kinda sinna. Foreldrar Bjarna lifðu þá enn, og báðu þau hann að fara ekki. En hann sagði, þau skyldu vera óhrædd, og vona ekki eftir sér fyr en að viku liðinni. Eftir það fór hann, og gekk nú samfleytt í þrjú dægur. Kom hann   [p. 77]   þá að hellisskúta einum, og svaf þar. Þegar hann vaknaði, var komin níðmyrkurs þoka. Samt hélt hann af stað, og villtist hann nú skjótt. Gekk hann þá til þess, er hann kom í dal einn allmikinn. Þá var liðið á dag. Þokulaust var niðri í dalnum. Þegar hann kom niður í dalinn, sá hann þar bæ mikinn og reisulegan. Þangað fór hann. Sér hann þar karla og konur við slátt á engi fyrir utan túnið. Gengur hann þar að, sem konurnar eru. Þær voru þrjár, og var ein þeirra tíguglegri en hinar. Hann heilsar þeim, og spyr, hvort hann muni fá að vera þar um nóttina. Þær segja allar já, og fer ein þeirra heim með honum að bænum. Það var ung stúlka, og ofur lagleg. Það var eins og Bjarna sýndist hún lík systur sinni, þeirri er hann hafði misst á grasafjallinu forðum. Rifjaðist þá allur sá atburður upp fyrir honum, og varð hann angráður með sjálfum sér, en lét þó stúlkuna ekki verða vara við það. Koma þau nú heim, og leiðir stúlkan Bjarna inn í bæinn. Voru þar stór hús og falleg. Koma þau nú í herbergi eitt rúmgott og vel vandað. Þar fær stúlkan Bjarna stól, og biður hann bíða sín. Hleypur *hún þá út, en   [p. 78]   kemur að vörmu spori inn aftur, og setur mat og vín á borðið fyrir Bjarna. Snæðir hann síðan, en að því búnu, biður stúlkan hann ganga til hvílu. Fylgir hún honum nú í hús eitt lítið, og er þar sæng uppbúinn. Háttar nú Bjarni, og dregur stúlkan af honum vosklæði, býður honum síðan góðar nætur, og fer burtu. Hugsar hann nú um, hvar hann muni vera, og hvernig á því muni standa, að þessi stúlka hafi svo rifjað upp fyrir sér harma sína, og skilur ekki í því. Út frá þessum hugsunum sofnar hann, en vaknar við það, að hann heyrir söng uppi yfir sér. Heyrir hann, að á loftinu uppi yfir rúminu hans er verið að lesa, eins og títt er í sveitum. Sungu þar margir, karlar og konur, og bar þó ein rödd af öllum hinum. Þessi rödd vakti algerlega upp harma Bjarna, því þar þóttist hann þekkja hljóð Salvarar systur sinnar. Var hann nú nokkra stund að hugsa um þetta, en síðan sofnaði hann aftur, og vissi ei fyr, en litla stúlkan, sem hafði þjónað honum til sængur um kveldið, vakti hann. Kom hún þá með góð klæði, og bað hann fara í þau; því hún sagði, að hann mundi verða þar um daginn; því það var sunnudagur. Fer þá stúlkan   [p. 79]   út. En á meðan Bjarni var að klæða sig, kom inn til hans piltur dálítill. Hann var á grænum klæðiskjól, og að öllu vel búinn. Sveinninn heilsar Bjarna, og er mjög ræðinn við hann. "Hvað ertu að fara"? segir pilturinn. "Ég er að svipast að fé", segir Bjarni. "Ekki hefi ég orðið var við það hérna í dalnum", segir pilturinn. "Þú verður hér kyr hjá okkur í dag; því hann faðir minn ætlar að messa", segir hann. Í þessu kemur stúlkan inn, og segir: "Sveinn, vertu ekki að neinu bulli við manninn*". Ber þá stúlkan á borð fyrir Bjarna. En þegar hann var búinn að snæða, fer hún út. Sér hann þá fjölda fólks vera að koma, og tekur nú sveinninn í hönd honum, og leiðir hann út í kirkjuna, og vísar honum í sæti. Litast Bjarni nú um, og þekkir hann þá rauðklædda manninn við hliðina á sér, sem komið hafði til hans á fjöllunum. En það sá hann var presturinn, sem þá var á dökku klæðunum. Margir voru í kirkjunni, og voru flestir karlmennirnir illilegir og stórir. Sumir þeirra voru í sauðsvörtum klæðum prjónuðum. Tekur þá Bjarni upp dósina góðu, og býður sessunaut sínum í nefið, og þág hann það. Í framkirkjunni   [p. 80]   sér Bjarni konu eina tíguglega búna, og þóttist hann þar þekkja systur sína. Þau horfðu hvort á annað, og var eins og hún ýmist brosti, eða gréti, þegar hún sá hann. Þóttist hann nú sjá, hvernig öllu var háttað, og að hann var kominn til systur sinnar. Leið nú messan, og fór embættisgerðin ágætlega fram. Eftir blessanina tekur pilturinn í hönd Bjarna, og leiðir hann út. En þegar þeir koma út fyrir dyrnar, situr þar karl einn gamall og illilegur. Hann bregður fæti fyrir Bjarna, svo hann dettur. Hleypur þá pilturinn inn í kirkjuna að rauðklædda manninum, og sækir hann. Rauðklæddi maðurinn tók þá til karlsins, og dustaði hann til, en pilturinn fór með Bjarna í bæinn. Að litlum tíma liðnum koma þeir þar, rauðklæddi og bláklæddi maðurinn. Þeir heilsa Bjarna vingjarnlega, og spyrja, hvort hann þekki sig. Hann sagði, að svo væri, og var nú heldur fár við; því margt rifjaðist nú upp fyrir honum. En í þessu kemur inn konan, sem hann sá í kirkjunni, og hélt, að væri sysir sín. Hún hljóp í faðminn á Bjarna, og segir: "Í faðmlögum vorum við í móðurlífi, grátandi var ég þaðan tekin, og nú kem ég hlæjandi aftur í   [p. 81]   faðm þinn, bróðir"! Heilsast þau nú, og verður þar fagnaðarfundur. Sagði hann henni þá allt, sem við hafði borið í Skagafirði, síðan hún hvarf. Þá segir rauðklæddi maðurinn: "Ég tók systur þína, Bjarni, úr faðmi þínum forðum, og gifti hana þessum bláklædda manni. Hann er sonur minn, og prestur okkar dalbúa, en ég er hér sýslumaður. Nú tók ég fé þitt, og villti þig hingað, svo þið gætuð fundist, systkinin, og sagt hvort öðru sögu ykkar, síðan þið skilduð. Á morgun skal ég fylgja þér, og fá þér fé þitt, en vertu hér í nótt, og talaðu við systur þína". Bjarni gerir nú þetta. Um morguninn fer hann, og kveður systur sína með mörgum tárum. Rauðklæddi maðurinn fer nú með honum, og reka þeir féð saman. Bláklæddi maðurinn var og með þeim, og fylgdu þeir honum ofan undir byggð. Þar skilja þeir, og mæltu til vináttu hvor af öðrum. Segir þá dökkklæddi maðurinn, að hann ætli að senda eftir honum í vor, og skuli hann þá vera ferðbúinn um fardagana; "skaltu búa hjá oss í dalnum". --- Kemur nú Bjarni heim, og segir konu sinni og foreldrum ferðasögu sína og fyrirætlan, en biður þau leyna því. Líður   [p. 82]   nu fram að fardögum, þá koma menn þrír með hesta til Bjarna. Fór hann um nóttina með allt sitt bú, karl og kerlingu, konu og börn. Koma þau nú í dalinn, og varð þar fagnaðarfundur. Þar bjó Bjarni lengi. En þegar hann var gamall orðinn, fór hann aftur til Skagafjarðar. Sagði hann þá sögu þessa, og dó síðan í góðri elli.

Previous Previous section

Next section Next




Go up to Top of Page