Brennu-Njáls saga [selections] (1996)
77
[ ... ]Þeir sóttu þá heim að húsunum. Gunnar skaut út örum að þeim og varðist vel og gátu þeir ekki að gert. Þá hljópu sumir á húsin upp og ætluðu þaðan að að sækja. Gunnar kom þangað að þeim örunum og gátu þeir ekki að gert og fór svo fram um hríð. Þeir tóku hvíld og sóttu að í annað sinn. Gunnar skaut enn út örunum og gátu þeir enn ekki að gert og hrukku frá í annað sinn.
Þá mælti Gissur hvíti: "Sækjum að betur, ekki verður af oss."
Gerðu þeir þá hríð hina þriðju og voru við lengi. Eftir það hrukku þeir frá.
Gunnar mælti: "Ör liggur þar úti á þekjunni og er sú af þeirra örum og skal eg þeirri skjóta til þeirra. Og er þeim það skömm ef þeir fá geig af vopnum sínum."
Móðir hans mælti: "Ger þú eigi það son minn að þú vekir þá er þeir hafa áður frá horfið."
Gunnar þreif örina og skaut til þeirra og kom á Eilíf Önundarson og fékk hann af sár mikið. Hann hafði staðið einn saman og vissu þeir eigi að hann var særður.
"Hönd kom þar út," segir Gissur, "og var á gullhringur og tók ör er lá á þekjunni og mundi eigi út leitað viðfanga ef gnógt væri inni og skulum vér nú sækja að."
Mörður mælti: "Brennum vér hann inni."
"Það skal verða aldrei," segir Gissur, "þó að eg viti að líf mitt liggi við. Er þér sjálfrátt að leggja til ráð þau er dugi svo slægur maður sem þú ert kallaður."
Strengir lágu á vellinum og voru hafðir til að festa með hús jafnan.
Mörður mælti: "Tökum vér strengina og berum um ásendana en festum aðra endana um steina og snúum í vindása og vindum af ræfrið af skálanum."
Þeir tóku strengina og veittu þessa umbúð alla og fann Gunnar eigi fyrr en þeir höfðu undið allt þakið af skálanum. Gunnar skýtur þá af boganum svo að þeir komast aldrei að honum. Þá mælti Mörður í annað sinn að þeir mundu brenna Gunnar inni.
Gissur svarar: "Eigi veit eg hví þú vilt það mæla er engi vill annarra og skal það aldrei verða."
Í þessu bili hleypur upp á þekjuna Þorbrandur Þorleiksson og höggur í sundur bogastrenginn Gunnars. Gunnar þrífur atgeirinn báðum höndum og snýst að honum skjótt og rekur í gegnum hann atgeirinn og kastar honum dauðum á völlinn. Þá hljóp upp Ásbrandur bróðir hans. Gunnar leggur til hans atgeirinum og kom hann skildi fyrir sig. Atgeirinn renndi í gegnum skjöldinn og svo meðal handleggjanna. Snaraði Gunnar þá svo fast atgeirinn að skjöldurinn klofnaði en brotnuðu báðir handleggirnir og féll hann út af vegginum. Áður hafði Gunnar særða átta menn en vegið þá tvo. Þá fékk Gunnar sár tvö og sögðu það allir menn að hann brygði sér hvorki við sár né við bana.
Hann mælti til Hallgerðar: "Fá mér leppa tvo úr hári þínu og snúið þið móðir mín saman til bogastrengs mér."
"Liggur þér nokkuð við?" segir hún.
"Líf mitt liggur við," segir hann, "því að þeir munu mig aldrei fá sóttan meðan eg kem boganum við."
"Þá skal eg nú," segir hún, "muna þér kinnhestinn og hirði eg aldrei hvort þú verð þig lengur eða skemur."
"Hefir hver til síns ágætis nokkuð," segir Gunnar, "og skal þig þessa eigi lengi biðja."
Rannveig mælti: "Illa fer þér og mun þín skömm lengi uppi."
Gunnar varði sig vel og fræknlega og særir nú aðra átta menn svo stórum sárum að mörgum lá við bana. Gunnar ver sig þar til er hann féll af mæði. Þeir særðu hann þá mörgum stórum sárum en þó komst hann úr höndum þeim og varði sig þá enn lengi en þó kom þar að þeir drápu hann.
[ ... ]Content, © Mál og menning, 1991. Used with permission from Edda Miðlun og útgáfa hf.
TEI markup © Board of Regents of the University of Wisconsin System, 2005. All rights reserved.
Those interested in using these texts for any purpose not covered under Fair Use must seek the permission of the copyright holder, Edda Miðlun og útgáfa hf, and the University of Wisconsin-Madison Libraries.
