Brennu-Njáls saga [selections] (1996)
20
[ ... ]Njáll bjó að Bergþórshvoli í Landeyjum. Annað bú átti hann í Þórólfsfelli. Njáll var vel auðigur að fé og vænn maður yfirlits en sá hlutur var á ráði hans að honum óx eigi skegg. Hann var lögmaður svo mikill að engi var hans jafningi, vitur og forspár, heilráður og góðgjarn og varð allt að ráði það er hann réð mönnum, hógvær og drenglyndur, langsýnn og langminnigur. Hann leysti hvers manns vandræði er á hans fund kom.
Bergþóra hét kona hans. Hún var Skarphéðinsdóttir, kvenskörungur mikill og drengur góður og nokkuð skaphörð. Þau Njáll áttu sex börn, þrjá sonu og þrjár dætur og koma þeir allir við þessa sögu.
Content, © Mál og menning, 1991. Used with permission from Edda Miðlun og útgáfa hf.
TEI markup © Board of Regents of the University of Wisconsin System, 2005. All rights reserved.
Those interested in using these texts for any purpose not covered under Fair Use must seek the permission of the copyright holder, Edda Miðlun og útgáfa hf, and the University of Wisconsin-Madison Libraries.
