Mikið bókað í gistirýmum (Laugardaginn 1. júní, 2002)
[Article]
Laugardaginn 1. júní, 2002 - Aukablöð
Austurland, Múlasýslur og Austur-Skaftafellssýsla
Mikið bókað í gistirýmum
Á Austurlandi er mikið um að vera í sumar. Eins og kunnugt er eru margir merkir staðir á Austurlandi sem vert er að skoða. Má þar t.d. nefna minjasafnið á Burstarfelli, í Jökuldal eru hreindýr í litlum dýragarði.
Á Austurlandi er mikið um að vera í sumar. Eins og kunnugt er eru margir merkir staðir á Austurlandi sem vert er að skoða.
Má þar t.d. nefna minjasafnið á Burstarfelli, í Jökuldal eru hreindýr í litlum dýragarði. Þá má ekki gleyma hinu umtalaða Eyjabakkasvæði og Skriðuklaustur er spennandi að skoða. Hallormsstaðarskógur er yndislegur í grænum sumarskrúða og sigling á Lagarfljóti er líka yndisleg. Eiðar eru þekkt skólasetur og á Norðfirði eru náttúrugripasafn og náttúrustofa. Á Eskifirði er sjóminjasafn og stríðsárasafnið er á Reyðarfirði.
Á Suðausturlandi er Skaftafell með öllum sínum gönguleiðum og ágætu tjaldstæðum. Einnig eru í boði ferðir á Vatnajökul..
"Við höldum upp á sjómannadaginn með pomp og prakt hér á Austurlandi, einkum er það rækilegt á Norðfirði," segir Jóhanna Gísladóttir ferðamálafulltrúi.
"Aðrir viðburðir stórir í sniðum eru t.d. Bjartar nætur - Óperustúdíó Austurlands stendur þá fyrir óperuflutningi og tónleikum. Ýmsir fastir liðir verða hér að venju, svo sem tónleikar í Bláu kirkjunni á Seyðisfirði og listahátíð þar í bæ, Fransmannasýningin á Fáskrúðsfirði og sýningarnar á Skriðuklaustri.
[ ... ]Djasshátíð á Egilsstöðum
Djasshátíðin á Egilsstöðum er mikill viðburður sem margir sækja og listahátíð ungs fólks á Seyðisfirði er mjög spennandi. Hún hefur sama form og íþróttamót, nema hvað þarna er viðfangsefnið listir.
Karlinn í tunglinu og börnin er jörðinni er svo nafn á listahátíð barna á Seyðisfirði."
Er fólk duglegt að sækja þessa viðburði alla?
"Já, bæði heimafólk og ferðamenn. Það fer eftir veðri hvað margir sækja okkur heim, en útlitið núna er óvenju gott, mikið bókað af gistirýmum."
Á Suð-austurlandi er Skaftafellsþjóðgarðurinn sá staður sem fólk sækist mjög eftir að skoða. Þar er búið að merkja ýmsar gönguleiðir og hægt að fá leiðsögn ef vill. Tjaldstæði eru þarna góð og veitingastaður og gestastofan opin fyrir þá sem vilja. Fólki hefur að undanförnu gefist kostur á að sigla á Jökulsárslóni með leiðsögn og til boða standa og ferðir á jökulinn. Í Lónsöræfum geta menn farið í ferðir og þar eru líka merktar gönguleiðir. Frá Djúpavogi má fara út í Papey og þar er líka minjasafn um listamanninn Ríkarð Jónsson - svo eitthvað sé nefnt.."
Tenglar:www.east.is www.southeast.is www.sfk.is
© Morgunblaðið, 2004
Content, including images, © Morgunblaðið, 2004. Used with permission.
TEI markup © Board of Regents of the University of Wisconsin System, 2004. All rights reserved.
Those interested in using these texts for any purpose not covered under Fair Use must seek the permission of Morgunblaðið and the University of Wisconsin-Madison Libraries.





