Mesta þátttaka frá upphafi (Þriðjudaginn 13. ágúst, 2002)
[Article]
Þriðjudaginn 13. ágúst, 2002 - Innlendar fréttir
Yfir 25 þúsund þátttakendur í Hinsegin dögum í Reykjavík um helgina
Mesta þátttaka frá upphafi
MILLI 25 og 30 þúsund manns tóku þátt í dagskrá Hinsegin daga, eða Gay Pride, sem voru haldnir í fjórða sinn í Reykjavík um helgina.
MILLI 25 og 30 þúsund manns tóku þátt í dagskrá Hinsegin daga, eða Gay Pride, sem voru haldnir í fjórða sinn í Reykjavík um helgina. Líf og fjör var í fjölmennri skrúðgöngu sem fór niður Laugaveg á laugardag og endaði á Ingólfstorgi þar sem boðið var upp á fjölmörg skemmtiatriði.
Að sögn Heimis Más Péturssonar, framkvæmdastjóra Hinsegin daga í Reykjavík, fór þátttaka í dagskránni í ár fram úr björtustu vonum aðstandenda. Hinsegin dagar hófust með tónleikum og uppákomu á skemmtistaðnum Spotlight á föstudag, en hápunktur skemmtunarinnar var á laugardag, þegar fjölmenn skrúðganga hélt frá Hlemmi áleiðis á Ingólfstorg.
Fólk frá útlöndum og hópar utan af landi
"Ég geri ráð fyrir að þeir sem alls tóku þátt í þeirri skemmtun hafi verið á bilinu 25 til 30 þúsund manns sem er enn fleira fólk en tók þátt í deginum í fyrra. Það er nokkuð um að fólk komi erlendis frá til að taka þátt í þessu með okkur og það er að aukast þar sem við höfum verið iðin við að kynna hátíðina í útlöndum," segir Heimir.
Hann segir að skipulögð atriði í göngunni niður Laugaveginn hafi verið rúmlega 30 og nokkur hundruð manns hafi tekið þátt í þeim. Mikil vinna sé að undirbúa hátíð sem þessa, undirbúningur taki 10 til 11 mánuði.
Heimir Már segir að fyrir utan slysið sem varð þegar skyggni hrundi á Ingólfstorgi hafi allt farið vel fram. Meira hafi verið lagt í hátíðina en fyrr, bæði atriði á sviði og í göngu. Þá hafi í fyrsta sinn verið áberandi þátttaka utan af landi en frá Akureyri hafi komið 15 manns með skipulagt atriði og einnig hafi hópur frá Ísafirði verið á staðnum.
© Morgunblaðið, 2004
Content, including images, © Morgunblaðið, 2004. Used with permission.
TEI markup © Board of Regents of the University of Wisconsin System, 2004. All rights reserved.
Those interested in using these texts for any purpose not covered under Fair Use must seek the permission of Morgunblaðið and the University of Wisconsin-Madison Libraries.





