University of Wisconsin Digital Collections
Link to University of Wisconsin Digital Collections
Link to University of Wisconsin Digital Collections
Icelandic Online Dictionary and Readings

Karlar gegn nauðgunum (Þriðjudaginn 20. apríl, 2004)

 

[Article]

Þriðjudaginn 20. apríl, 2004 - Innlendar fréttir

Karlar gegn nauðgunum

KARLMENN segja nei við nauðgunum, er yfirskrift átaks sem karlahópur Femínistafélags Íslands hleypti af stokkunum í gær og ætlar að standa að þessa vikuna.

Color photograph

Morgunblaðið/Ásdís

Arnar Gíslason frá karlahópi Femínistafélagsins afhenti Þórólfi Árnasyni bol með áletruninni NEI sem er merki átaks hópsins gegn nauðgunum. Borgarstjóri fagnaði átakinu og óskaði hópnum velfarnaðar. Arnar hvatti borgarstjóra, eins og aðra karla, til að ræða um nauðganir í sínum vinahópi.

KARLMENN segja nei við nauðgunum, er yfirskrift átaks sem karlahópur Femínistafélags Íslands hleypti af stokkunum í gær og ætlar að standa að þessa vikuna. Átakið er framhald þess sem hófst um verslunarmannahelgina í fyrra og gengur út á að vekja karlmenn til umhugsunar um nauðganir. Með átakinu vill karlahópurinn fá karla til að staldra við og velta fyrir sér því hvað þeir geti gert til að koma í veg fyrir nauðganir. Karlahópurinn vill með átakinu virkja krafta karla í baráttunni gegn ofbeldi á konum.

"Við erum að halda áfram með átak sem við byrjuðum í fyrra. Okkur langaði að byrja sumarið á þessum jákvæðu nótum, að koma þessum boðskap á framfæri við karlmenn og fá þá til að ræða þessa hluti. Það er þessi samábyrgð karlmanna sem við viljum leggja áherslu á," segir Hjálmar Sigmarsson í karlahópi Femínistafélagsins.

Hann segir það ekki ætlunina að benda á karlmenn sem einhvers konar sökudólga, heldur vilji karlahópurinn hvetja karlmenn til að standa saman í því skyni að koma í veg fyrir nauðganir.

Kemur körlum líka við

Á föstudag hyggjast meðlimir karlahóps Femínistafélagsins standa fyrir utan nokkrar verslanir ÁTVR og vekja athygli á átakinu. "Við ætlum að vera vel merktir og fá aðra karlmenn til að taka þátt í þessari umræðu. Við erum að reyna að koma því til skila að þetta er ekki endilega kvennamál sem kemur körlum ekki við," segir Hjálmar.

Styrktaraðilar átaks karlahópsins eru auglýsingastofan Hvíta húsið, Lýðheilsustöð og Reykjavíkurborg. Borgarstjóri, Þórólfur Árnason, fékk afhentan bol með merki átaksins í ráðhúsinu í gærdag. Hildur Jónsdóttir, jafnréttisráðgjafi Reykjavíkurborgar, sagði við það tækifæri að það væri afar jákvætt að karlar tækju frumkvæði gegn nauðgunum með þessum hætti.

Að sögn Arnars Gíslasonar, liðsmanns karlahópsins, vilja þeir sem að átakinu standa hvetja karlmenn til að ræða sín á milli um þann glæp sem nauðgun er. "Hugmyndin er að karlmenn tali við karlmenn. Þótt langfæstir karlmenn nauðgi nokkurn tímann þá eru flestar nauðganir þannig að karlmenn nauðga konum. Þetta er svartur blettur sem við þurfum að hreinsa af okkur. Við erum að reyna að gera þetta með því að hvetja karla til að tala við vini sína," segir Arnar.

© Morgunblaðið, 2004


Go up to Top of Page